English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Bókasafns- og upplýsingadeild
Bókasafns- og upplýsingadeild 
Bókasafn LbhÍ er sérfræðisafn sem þjónar fagsviðum Landbúnaðarháskóla Íslands. Safnið starfar á þremur stöðum: Hvanneyri, Keldnaholti og Reykjum í Ölfusi.

Hlutverk
Bókasafn Landbúnaðarháskólans veitir starfsmönnum háskólans, nemendum og öðrum sem til hans leita, aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms, kennslu og rannsókna. Áhersla er lögð á stöðuga þróun við uppbyggingu bóka- og tímaritakost svo að jafnvægi skapist á milli vísinda- og fræðasviða háskólans. Boðið er upp á aðgang að úrvals gagnasöfnum og rafrænum tímaritum sem nýtist við háskólanám, rannsóknir og vísindi. Á háskólasafninu er boðið upp á þjálfun í upplýsingalæsi sem felur í sér að leita upplýsinga, meta þær og nýta á faglegan hátt.

Þjónusta á Hvanneyri
Bókasafn Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri er opið alla virka daga frá kl. 08:00-16:00.
Bókasafns- og upplýsingafræðingar bókasafnsins leggja áherslu á góða og faglega þjónustu. Greiður aðgangur er að margvíslegu fræðsluefni hvort sem er á prentuðu eða rafrænu formi og veitt er ráðgjöf og aðstoð við upplýsingaleit og notkun safnkosts.

Boði er upp á millisafnalán sem felur í sér að bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, annaðhvort ljósrit af tímaritsgreinum eða bækur, frá öðrum söfnum, innlendum eða erlendum.

Þjónusta á Reykjum
Bókasafnið á Reykjum er opið virka daga frá kl. 8:00-16:00. Bóka- og tímaritakostur er sérhæfður á sviði garðyrkju. Annað efni er útvegað í millisafnaláni. Á bókasafni hafa nemendur aðgang að tölvum, prentara og ljósritunarvél.

Leiðbeiningar um leit í Metrabók
Metrabók Hvanneyri
Metrabók Keldnaholti
Metrabók Reykjum

Kennsluvefur í upplýsingalæsi

LbhÍ Hvanneyri
Steinunn S. Ingólfsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, s. 433 5007. 
Netfang: steinunn@lbhi.is

LbhÍ Reykjum
Guðrún Þórðardóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, s. 433 5306
Netfang: gudrun@lbhi.is   







 




























+